Meðferðir

l%EDf_og_framt%ED%F0002020.jpg
Er sálarlífið tætt? Eða ertu þreytt/ur á lífinu?
MMT er markviss, alhliða, áhrifamikil Sálfræðimeðferð.
Í MMT er sett saman meðferðarform sem hentar hverjum einstakling, þetta er sem sagt einstaklingsmiðuð meðferð. Markmið MMT er að minnka andlega vanlíðan og efla persónulegan þroska skjólstæðings eins hratt og varanlega og hægt er.

Ef fíknir eru hluti af þínu vandamáli, þá getum við komið þér til aðstoðar
MMT - Margþætt meðferð - Hugræn atferlismeðferð
l%EDf_og_framt%ED%F0002019.jpg
Voru áföll í lífi þínu sem barns? Fluttir þú eða skiptir um skóla? Misstir þú ættingja eða varðst fyrir annarskonar missi?
PICT er kröftug, fljótvirk alhliða hugræn meðferð fyrir fólk sem hefur lent í ofbeldi, misnotkun, vanrækslu, missi eða öðrum áföllum á barnsaldri.
PICT er byggt á Transactional Analysis - TA og Neuro-Linguistic Programming – NLP sem virkar fljótt og leiðir til kröftugra breytinga.
PICT - Parks Inner Child Therapy
Finnst þér ástin horfin? Ertu leið/ur eða endalaus rifrildi?
Hefur orðið trúnaðarbrestur í sambandinu?
Í 95% tilvika er hægt að lagfæra samband/hjónaband.

Hjónameðferðin er markviss og árangursrík og tekur sem samsvarar einni viku af lífi ykkar. Er það ekki þess virði?
Oftast þarf fólk að mæta í 10 - 16 skifti, fer eftir vandanum. Farið er í gegnum verkefnabók og ykkur kennt að tala saman og vinna úr ágreiningsmálum. Byggt er á styrkleikum í sambandinu sem oftast eru einhverjir.
Hægt er að segja til með nokkurri vissu hvort fólk getur unnið sig úr vandanum eða ekki.
An Evidence Based Marital Therapy [Dr. John Gottman]

PREPARE/ENRICH [Olson MA]
Meðferðir - Námskeið - Fyrirlestrar
.
Fréttir

    Líf og framtíð

Sálræn áfallahjálp
Þegar áföll verða í lífi okkar, hvort sem við erum börn eða fullorðin þá er mjög nauðsynlegt að fara í gegnum það eins fljótt og hægt er eftir áfallið. Þegar áföll verða þá gleymast börnin oft. Það er talað við fullorðna fólkið um það sem gerðist en börnin verða útundan. Það skiftir í raun ekki máli hve lítið eða stórt áfallið er. Hættan sem skapast ef ekki er unnið úr áfallinu er að viðkomandi aðili þrói með sér PTSD sem er Post Traumatic Stress Disorder og kemur fram nokkrum mánuðum eða árum eftir áfall. PTSD er mikið erfiðara að eiga við heldur en að vinna úr áfallinu STRAX.
Sálræn áfallahjálp er nokkuð einföld, farið er eftir ákveðnu ferli og getur verið einstaklingsmiðuð eða í hópum.
Hjartanærandi aðferð - HNA
Hjartanærandi aðferðin - HNA er notuð sem meðferð fyrir erfið og krefjandi börn og unglinga. Aðferðin er sérstaklega sett saman fyrir börn og unglinga með ADHD, ODD ofl. Einnig er HNA notað sem viðbót við meðferð við þunglyndi, kvíða og vímuefnavanda. HNA virkar mjög vel í hópum og hægt er að hafa 20 til 30 manns í hóp og ná jafngóðum árangri og með 5 manns. HNA er því ódýrt verkfæri.
Heim
Meðferðir
Hjartanærandi
uppeldi
Verndari barna
Hjónanámskeið
ADHD Hjálp
Tímastjórnun
Kærleiksþjónusta
Sálræn áfallahjálp
Greinar
Söngkennsla
Um okkur
Hafa samband
Tenglar
l%EDf_og_framt%ED%F0002014.jpg l%EDf_og_framt%ED%F0002013.jpg l%EDf_og_framt%ED%F0002012.jpg l%EDf_og_framt%ED%F0002011.jpg l%EDf_og_framt%ED%F0002010.jpg l%EDf_og_framt%ED%F0002009.jpg l%EDf_og_framt%ED%F0002008.jpg l%EDf_og_framt%ED%F0002007.jpg l%EDf_og_framt%ED%F0002006.jpg l%EDf_og_framt%ED%F0002005.jpg l%EDf_og_framt%ED%F0002004.jpg l%EDf_og_framt%ED%F0002003.jpg l%EDf_og_framt%ED%F0002002.jpg l%EDf_og_framt%ED%F0002001.jpg