Um okkur
Gréta Jónsdóttir er fjölskyldu- og hjónaráðgjafi. Hún útskrifaðist frá Newbold College, Berkshire, Englandi vorið 2005.
Meðferðarformið sem unnið var með heitir Multimodal Therapy [Arnold Lazarus) og hjónaráðgjöf PREPARE/ENRICH.
Vorið 2006 lauk hún Advanced Diploma in Higher Education í Parks Inner Child Therapy frá PPFoundation og Anglia Ruskin University, London.
Sumarið 2008 lauk Gréta þjálfun í Hjónameðferð - An Evidence Based Marital Therapy - Gottman Institute hjá Integrative Counselling Services og Newbold College.
Einnig nam Gréta uppeldisaðferðina Transform the Difficult Child - The Nurtured Heart Approach hjá Howard Glasser M.A., Tom Grove M.A. og Circels Network, Manchester, Englandi sumarið 2008.
Í janúar 2009 bætti Gréta við námi í Psychological Debriefing eða sálrænni áfallahjálp fyrir börn og fullorðna.
Gréta hefur sótt fjölda námskeið og fyrirlestra hér heima og erlendis.
Árið 1999 lauk Gréta Söngkennaraprófi LRSM frá Söngskólanum í Reykjavík.
Gunnar Þór Gunnarsson útskrifaðist úr Ráðgjafaskóla Íslands sem Áfengis- og vímuvarnaráðgjafi 2008.
Gréta vinnur á eigin vegum við einstaklings-, hjóna- og fjölskyldumeðferð og sinnir söngkennslu. Hún býður upp á fjölda námskeiða og fyrirlestra: Hjónameðferð, Hjartanærandi uppeldisaðferð, Hvað er ADHD? Hvað er ofbeldi á börnum? Verndari barna og námskeið í Kærleiksþjónustu - Sálgæslu -Pastoral Skills og margt fleira.
Útskrift Newbold College
Meðferðir - Námskeið - Fyrirlestrar